Skilmálar

Afhending vöru

Þegar þú verslar í vefverslun Puha design getur þú valið á milli þess að sækja pöntunina í Kaki, Strandgötu 11 í Hafnarfriði eða fá hana senda á næsta afhendingarstað hjá Eimskip.

Allar pantanir, sem á að sækja eru komnar í Kaki, Strandgötu 11 næsta föstudag eftir að kaupandi hefur fengið tölvupóst þess efnis að varan sé tilbúin til afhendingar, nema annað sé tekið fram við pöntun.

Ef pöntunin þín er send með Eimskip fer hún í póst 24-48 klst eftir að staðfesting á að varan sé tilbúin til sendingar. Hér teljast hátíðar- og helgidagar ekki með.

Ef um sendingar út fyrir landsteinana er að ræða geta tollar og gjöld viðkomandi lands bæst við vöruverðið sem er ekki innifalið í verðunum okkar hér á heimasíðunni. Vek athygli á að ofan á vörurverð bætast svo við afgreiðslu og tollagjöld (vsk) í viðkomandi landi.

Skilafrestur

Samkvæmt reglum um rafræn kaup, mátt þú hætta við kaupin innan 14 daga að því tilskildu að vörunni sé skilað í upprunalegum umbúðum og í því ástandi sem hún kom til þín. Greiðslukvittun fyrir vörukaupum þarf að fylgja með ef um vöruskil er að ræða. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt. Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema ef um er að ræða ranga/gallaða vöru.

Endurgreiðsla er gerð á sama kreditkort og kaupin áttu sér stað upphaflega og athugið að endurgreiðsla getur tekið allt að 5 virka daga til að ganga í gegn. Þetta getur verið mismunandi eftir kortafyrirtækjum og getum við því miður ekki haft áhrif á þetta.

Verð

Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Greiðslumöguleikar

Hægt er að greiða með greiðslukorti í gengum Paypal.
Vinsamlega athugið að einnig er hægt að greiða með millifærslu og þær upplýsingar eru inn á síðunni þegar millifærsla er valin.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 46/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða móttaka vöru á sér stað.

Puha design áskila sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

Upplýsingar um seljanda
Puha design
Róbert Halbergsson
kt: 1206804399

Köllunarklettsvegur 4
104 Reykjavík 
s: 893-3303
sala@puhadesign.com

Persónuvernd

Puha design virðir friðhelgi persónuupplýsinga um viðskiptavini sína. Með því að heimsækja vefinn lýsir þú þig samþykkan þeim hefðum sem lýst er í núverandi yfirlýsingu um persónuvernd og öryggi. Ef þú hefur áður heimsótt vefinn vinsamlega kynntu þér yfirlýsinguna að nýju til að fullvissa þig um að þú þekkir núverandi skilmála. Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi öryggi og trúnað við meðferð upplýsinga um þig geturðu haft samband með tölvupósti á fyrirspurn@puhadesign.com

Persónulegar upplýsingar sem við söfnum

Mögulegt er að við söfnum persónugreinanlegum upplýsingum um þig, svo sem nafni, heimilisfangi, netfangi, símanúmeri og kreditkortanúmeri, í tengslum við afgreiðslu á pöntun frá þér eða vegna annarra samskipta við þig. Til dæmis skráum við þær persónugreinanlegu upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að koma til skila þeirri vöru sem þú kaupir. Einnig fjármálatengdar upplýsingar, svo sem kreditkortanúmer og heimilisfang vegna reiknings, og einstaklingsupplýsingar, svo sem netföng, heimilisfang, símanúmer og viðtökustað vörusendingar. Fjármálatengdar upplýsingarnar eru nýttar eingöngu til að innheimta greiðslu fyrir þá vöru sem þú kaupir.

Að versla á vefnum

Við leggjum okkur fram um að vernda persónulegar upplýsingar með því að nota þá öryggisstaðla sem viðeigandi eru eftir eðli upplýsinganna, hvort sem þær upplýsingar eru fengnar og/eða geymdar fyrir milligöngu netsins eða ekki. Við gerum allt sem skynsamlegt og viðeigandi getur talist til að koma í veg fyrir að slíkar upplýsingar glatist, verði stolið, óviðkomandi fái aðgang að þeim, þær verði opinberaðar, afritaðar, notaðar, þeim breytt eða eytt. Við leggjum sérstaka áherslu á að tryggja öryggi upplýsinga þegar keyptar eru vörur í gegnum vefsíðuna.

Þegar þú pantar vöru í gegnum netverslun Puha design geymum við upplýsingar um kreditkortanúmerið þitt aðeins þar til varan hefur verið send frá okkur og greiðslurnar eru frágengnar. Korta er með PCI DSS (Payment Card Industry Data Security Standard) löggildingu sem er ætluð að takmarka öll korta fjársvik.Korta notar AVS (Address Verification Services), CVV2 (Card Verification Value, MasterCard SecureCode, Verified by Visa (VbV) og Payment Application Data Security Standard (PA DSS) for distributed software.

Kortaupplýsingar eru geymdar á öruggum stað á meðan á greiðsluferlinu stendur. Fyrir frekari upplýsingar þjónustu Korta bendum við á heimasíðu Korta

Ábyrgðarskilmálar

Ef vara telst gölluð munum við gera við hana eða skipta henni eða endurgreiða, allt án kostnaðar fyrir viðskiptavini. Athugið að ábyrgðin nær ekki til tjóns sem hlýst af slysi, þvotti, vanrækslu, venjulegu sliti eða eðlilegu litatapi sem verður við notkun og eða sökum aldurs vörunnar.

Svo hægt sé að meta hvort vara sé gölluð þarf að hafa samband í tölvupósti á info@puhadesign.com ásamt kvittun til staðfestingar á kaupunum.